Engar vörur í körfunni
Fyrir sérbýli þarftu heimahleðslustöð og getur þú valið um nokkrar gerðir hjá okkur sem gætu hentað þínum bíl og passað við húsnæðið þitt. Hleðslustöð getur verið prýði á húsnæðinu fyrir þá sem huga að þannig málum.
Skoðaðu okkar heimahleðslustöðvar
Fyrir sérstæðið í fjölbýlinu þarftu kerfishleðslustöð og hjá okkur getur þú valið um Teltonika eða Smappee í þitt sérstæði en báðar eru með 22kW hleðsluhraða. Báðar eru þær glæsilegar en helsti munurinn milli þeirra felst í efnisgæðum þar sem Smappee er belgísk og er margverðlaunuð.
Skoðaðu okkar kerfisstöðvar
Þetta er góð spurning sem fer oft eftir því hvort hentar manni, en líka hvort sé hagkvæmara fyrir mann.
Gæða hleðslustöðvar hafa afar litla bilanatíðni svo að það eru afar litlar líkur á viðhaldskostnaði eftir ábyrgðartímann (annars myndu fáir þjónustuaðilar leigja hleðslustöðvar út fyrir litla upphæð).
AÐ LEIGJA
Ef þú leigir húsnæðið væri kannski ráð að leigja hleðslustöðina líka.
Ef þú átt húsnæðið en ætlar að búa þar skemur en 3 ár væri kannski ráð að leigja hleðslustöðina.
AÐ KAUPA
Ef þú átt húsnæðið væri ráð að kaupa hleðslustöðina til að koma upp varanlegri hleðsluaðstöðu.
Ef þú átt húsnæðið væri ráð að kaupa hleðslustöðina þar sem hún eykur verðgildi eignarinnar.
Að kaupa er einnig betri fjárfesting þar sem hleðslustöðin hefur annars borgað sig upp á um 3 árum (32-36 mánuðum) í leigu.
Til umhugsunar:
Þetta er frábær pæling en báðar útgáfurnar hafa sína kosti og ókosti.
Tenglastöð
Kostirnir eru
Ókostirnir eru
Kapalstöð
Kostirnir eru
Ókostirnir eru
Það er því svolítið þægindamál og útlitsmál hvort þú veljir hleðslustöð með tengli eða áföstum hleðslukapli.
Báðar útgáfurnar hlaða bílinn þinn jafn vel.
Við seljum ekki rafmagn til sérbýla og því þarftu ekki að skoða það þegar þig vantar heimahleðslustöð.
Við seljum almennt ekki rafmagnið í hleðslustöðvarnar í fjölbýlum heldur sjáum við um milliinnheimtuna fyrir húsfélagið.
Húsfélagið velur sér raforkusala og ræður hvert hleðslugjaldið er, og miðast það oftast við kjör húsfélagsins á rafmagni.
Algengast er að tvinnbílar séu eins fasa og hlaði á 3.6kW - 7.4kW og rafbílar séu þriggja fasa og hlaði á 11kW - 22kW.
Hvort sem þú ert á tvinn- eða rafbíl er því gott ráð að fá sér 22 kW hleðslustöð en hún er 3ja fasa og gefur allt að 7.4 kW á hvern fasa sem hentar bæði eins og þriggja fasa bílum.
Flestir rafbílar nota aðeins 11 kW (3.6 kW á hvern fasa) í hleðslu á meðan tvinnbílar nota allt að 7.4 kW á einn fasa. Því þarftu 22 kW hleðslustöð fyrir 7.4 kW hleðslu.
Einfalda svarið er að það þarf ekki að setja upp sér gjaldmæli fyrir hleðslustöðvar í fjölbýlum.
Rafkerfi fjölbýla eru með sér gjaldmæli fyrir sameign og/eða bílageymslu (sem þolir allt að 100A) og það er takmörkunin sem er gerð fyrir rafmagn sem fer í annað en íbúðirnar.
Það eru tvær ástæður fyrir því að setja upp sér gjaldmæli sem er aðeins fyrir hleðslustöðvar:
Rautt ljós þýðir að það sé villa í stöðinni sem hindrar að hleðsla hefjist af öryggisástæðum.
Algengasta ástæðan er að hleðslustöðin hefur misst samband við hleðslukerfið (t.d. misst netsamband) og nær ekki að senda frá sér mælingar fyrir álagsdreifinguna. Þá stöðvar hún hleðsluna til öryggis svo að rafmagn slái ekki út.
Aðrar ástæður tengjast bilun í vélbúnaði.
Best er að hringja í 513 1919 til að fá aðstoð eða senda tölvupóst á netfangið:
Helstu ástæður:
Það er aldrei góð hugmynd að nota mikið afl til þess að ná hleðslukaplinum út.
Hvoru tveggja er almennt og öruggt en þó er betra fyrir rafhlöðuna að hlaða heima fyrir í AC hleðslustöð fyrir líftíma rafhlöðunnar.
Hlaða uppí 100%:
Hlaða uppí 80%:
Flestir rafbílar eru með LFP (lithium iron phosphate) eða NMC (nickel manganese cobalt) rafhlöður sem báðar þola 100% hleðslu við hefðbundna hleðslu heima fyrir.
Hins vegar ef þú hleður oftar en einu sinni í viku og ferð ekki mikið í langferðir er gott að hlaða inná milli uppí 80% - 90%.
Góð regla er að hlaða bílinn þegar ca. 40% er eftir af hleðslunni til þess að stytta hleðslutímann í hvert skipti.
Það má hlaða rafhlöðuna í lofthitastigi 0°C - 30°C en besta lofthitastigið fyrir hleðslu er stofuhiti 20°C - 24°C.
Að hlaða rafhlöðuna yfir 40°C og neðar en 0°C getur hægt á hleðslunni um 20% - 50%.
ATH. ÞAÐ ER EKKI ÞÖRF Á ÞVÍ AÐ TÆMA RAFHLÖÐUNA VEGNA HEILSU RAFHLÖÐUNNAR.
Þegar hleðslan hefst eðlilega en stöðvast áður en rafhlaðan er fullhlaðin er ástæðan oft sú að stöðin hefur misst samband við hleðslukerfið til þess að senda inn mælingar fyrir álagsdreifingu.
Þá stöðvast hleðslan af öryggisástæðum en ef hleðslustöðin er reglulega að stöðva hleðsluna er best að hafa samband í síma 513 1919 eða senda tölvupóst á netfangið:
Það er betra fyrir bílinn þinn og fyrir fjölbýlið í heild.
Þegar hleðslukerfi er sett upp í fjölbýli er það gert af öryggisástæðum (stýra rafmagnsálagi) og til að ná fram hámarks hleðslukrafti þegar margir hlaða á sama tíma.
Hleðslukerfi tengist við sameiginlega raflögn og deilir rafmagni á milli margra bíla í hleðslu á sama tíma með álagsdreifingu.
Með þessu móti geta margir bílar hlaðið á sama tíma án þess að slá út rafmagni.
Hleðslukerfi er fulllestað þegar nokkrir bílar hlaða á sama tíma þannig að ef einn bíll hleður utan hleðslukerfisins getur hann valdið því að rafmagn slái út fyrir alla þar sem sá bíll var ekki hluti af virkri álagsdreifingu.
Helsti kosturinn fyrir hvern og einn að hlaða í hleðslukerfi er að hlaða á 3ja fasa rafmagni.
Ferðahleðslutæki eða 'ömmukapall' er fyrst og fremst neyðarhleðslutæki og hannað sem slíkt.
Neyðarhleðslutækið er ekki hannað fyrir reglulega notkun heldur til þess að geta reddað örhleðslu sem neyðarúrræði, líkt og varadekk til að komast á næstu hleðslustöð.
3 helstu staðreyndir um notkun neyðarhleðslutækja:
Góð regla er að tengja saman bíl og hleðslustöð líkt og bíl og dekk, nauðsynlegt saman til að leggja af stað.
Hraðhleðslustöðvum er ætlað að vera á almenningsstöðum fyrir fólk á ferðalögum til að bæta á rafhlöðuna nægilega mikilli hleðslu til að komast á áfangastað.
Á ferð í kringum landið er þó í lagi að notast eingöngu við hraðhleðslu þar sem það er í takmarkaðan tíma.
Hraðhleðslustöð er hönnuð til að streyma rafmagni beint til rafhlöðunnar með jafnstraum (DC). Með þessu móti er hægt að koma umtalsvert meiri rafafli til rafhlöðunnar en við þessa aðferð myndast mun meiri hiti á rafhlöðuna sem eykur álag á rafhlöðuna.
Við þetta aukna álag á rafhlöðusellurnar verður hrörnun rafhlöðunnar hraðari og líftíminn því styttri.
Við hleðslu með riðstraum (AC) þá sendir hleðslustöð riðstrauminn fyrst í hleðslujafnarann í bílnum sem breytir riðstraumnum í jafnstraum þar sem rafhlaðan getur einungis geymt jafnstraum.
Stutta svarið er að hlaða á hleðslustöð (3.6kW - 22kW) fyrir innanbæjarakstur og á hraðhleðslustöð (50kW - 300kW) á ferðalaginu.
Það er alltaf bíllinn sem ræður hleðsluhraðanum (álagsdreifing getur lækkað hleðsluhraðann).
Hleðsluhraði í hleðslustöð er alltaf takmörkuð við 7.4kW á stakan fasa að hámarki.
Langflestir rafbílar hlaða á 11kW (3 x 3.6kW) á meðan flestir tvinnbílar hlaða oftast á 3.6kW.
Sama á við um hraðhleðslustöðvar nema þær eru ekki með fasa heldur streyma rafmagni beint í gegnum plús og mínus tengipinna.
Reglan er því sú að stinga bílnum í samband og leyfa honum að hlaða eins og hann vill.
Ef þú ert að nota hleðslustöð í fjölbýli með hleðslukerfinu okkar (HLEÐ kerfið) þá þarftu að nota HLEÐ appið.
Hleðsluappið HLEÐ er mikilvægur þáttur fyrir:
Þú þarft að sækja HLEÐ appið í símann þinn:
Leitarorð = Hleð
Eftir að þú hefur sótt HLEÐ appið þarftu að skrá þínar upplýsingar í appið:
Hleðslukerfið HLEÐ er læst hleðslukerfi þannig að aðeins íbúar sem skrá sig geta notað sína eða hleðslustöðvar húsfélagsins.
Þú notar hleðsluappið aðallega til að:
Ef þú ert að nota hleðslustöðvar í sameign húsfélagsins:
Þú getur líka notað HLEÐ hleðslukort í stað þess að nota HLEÐ hleðsluappið.
Hleðsluappið HLEÐ tengist inná bókhaldskerfi Hleðsluvaktarinnar sem sendir mánaðarlega reikninga í heimabanka notenda fyrir sínum hleðslulotum í liðnum mánuði.
Sum húsfélög láta húsfélagaþjónustur annast gjaldtökuna á hleðslustöðvum frá okkur í gegnum hleðslukerfið HLEÐ. Þá fara oft mánaðarlegir reikningar fyrir hleðslulotum í gegnum húsgjaldareikninga hvers og eins.
Sendu okkur endilega þína spurningu/pælingu og við svörum þér við fyrsta tækifæri.
Þú getur líka hringt í okkur til að fá fljótari svör.