Hjá Hleðsluvaktinni sérhæfum við okkur í að skapa hleðsluaðstöðu fyrir rafbíla við fjölbýli þannig að íbúar geti hlaðið heima, og margir á sama tíma. Við höfum unnið að verkefnum allt frá bílskúralengjum og bílaplönum að stærstu bílageymslum landsins. Við setjum líka upp fyrir sérbýli og sumarbústaði.
Við leggjum áherslu á samstarf við fagaðila við hvert verkefni fyrir sig og hvort sem það á við um raflagnir eða jarðvinnu, þá skipta vönduð vinnubrögð og áreiðanlegur frágangur öllu máli. Við sækjum meiri reynslu og þekkingu við hvert verkefni og erum sífellt að bæta okkar þjónustu við okkar viðskiptavini.
Verkefnið var að koma upp hleðslukerfi í bílageymslu þannig að bílastæðin sem ekki hafa vegg gætu líka fengið hleðslustöðvar.
Lausnin var að setja staura í loftin sem myndu bera hleðslustöðvar fyrir stæðin beggja megin við án þess að taka pláss af stæðunum.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu á bílaskúralengju þar sem viðhald krefst þess ekki að þurfa að opna bílskúrana.
Lausnin var að setja upp hleðslukerfi undir þakskeggið með aðgengilegum dreifiboxum sem stýra hleðslustöðunum.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu þannig að 8 íbúðir gætu hlaðið á sama tíma þrátt fyrir takmarkað rafmagn.
Lausnin var að setja staura fyrir 2 hleðslustöðvar á milli hverra tveggja bílastæða og setja dýnamíska álagsdreifingu til að stýra rafmagnsálagi.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu í bílageymslu og gefa íbúum fleiri valkosti á hleðslustöðvum.
Lausnin var að setja Teltonika hleðslustöðvar sem hægt er velja mismunandi liti framan á og fást með tengli eða áföstum kapli.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu fyrir bílageymslu með sérstæði og bílaplan fyrir sameiginlegar hleðslustöðvar.
Lausnin var að setja tvöfaldar Smappee hleðslustöðvar á bílaplanið við húsið og planta auka sökklum til að fjölga hleðslustöðvum seinna.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu sem hægt væri að stækka og að hleðslustöðvarnar myndu ekki takmarka aðkomu að fjölbýlinu.
Lausnin var að setja tvöfaldar Smappee hleðslustöðvar á bílaplanið fjær húsinu og planta auka sökklum til að fjölga hleðslustöðvum seinna.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu Í bílageymslu þar sem veggsúlur eru við mörg bílastæði.
Lausnin var að setja dreifibox við raflagnabakkann á milli bílastæðanna til að tengja hleðslustöðvarnar snyrtilega frá niður í hvert sérstæði.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu fyrir bílageymslu með sérstæði og bílaplan fyrir sameiginlegar hleðslustöðvar.
Lausnin var að setja tvöfaldar Smappee hleðslustöðvar á bílaplanið við húsið til að viðhalda glæsilegum frágangi á bílaplaninu.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu fyrir sérstæði í fallegri bílageymslu með takmarkað rafmagn.
Lausnin var að setja upp hleðslukerfi með dýnamískri álagsdreifingu og halda fallegum frágangi á raflögnum sem sæmir bílageymslunni.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu Í bílageymslu þar sem mörg bílastæði eru ekki með vegg til að setja hleðslustöð á.
Lausnin var að setja staura í loftin sem myndu bera fjórar hleðslustöðvar án þess að taka pláss af bílastæðunum.
Verkefnið var að koma upp hleðsluaðstöðu í bílageymslu sem er opin og með bílastæðum ofaná bílageymslunni.
Lausnin var að setja Teltonika hleðslustöðvar sem hægt er að loka fyrir innstunguna og verja þannig fyrir sand- og snjófoki sem kann að koma inn.
Verkefnið var að koma upp fínni hleðsluaðstöðu í bílageymslu með grófri loftræstingu til að gera flott heildstætt útlit.
Lausnin var að setja Smappee hleðslustöðvar sem eru fínar og stílhreinar til að koma lúkki á grófu loftræstinguna.
Verkefnið var að koma upp hleðslustöð á nýtt parhús með svartri blikkklæðningu þannig að hleðslustöðin falli vel við húsið.
Lausnin var að setja dökkgráa Teltonika hleðslustöð með svörtum Besen kapalhaldara sem smellpassaði við húsið og nánast hverfur.
Verkefnið var að setja upp hleðslustöð á bílskúrinn og koma 3ja fasa rafmagni frá húsinu og inní skúrinn fyrir betri hleðslu.
Lausnin var að setja draga nýjan rafstreng í bílskúrinn og setja upp Webasto hleðslustöð sem er þýsk og verðlaunuð fyrir áreiðanleika.
Verkefnið var að setja upp hleðslustöð með 8 metra áföstum hleðslukapli þannig að hægt væri að hlaða bíl í báðum stæðunum við húsið.
Lausnin var að staðsetja hleðslustöðina hægra megin á bílskúrinn og setja Smappee kapalhaldara til að vefja 8 metrunum á.
Verkefnið var að setja upp hleðslustöð og mæla einnig rafmagnsnotkun hússins í heild til að stýra hleðslunni þegar rafmagnsnotkun er mikil í húsinu.
Lausnin var að setja upp Smappee Home hleðslustöð sem er með rafmagnseftirlitskerfi fyrir húsið og bílinn og stýrir hleðsluálagi eftir heildarnotkun hússins.
FÁÐU FRÍTT TILBOÐ
Við viljum endilega heyra frá þér ef húsfélagið er að skoða hleðslulausn fyrir fjölbýlið.
Líka ef þú ert að hugsa um að koma upp hleðslustöð við heimilið eða bústaðinn.