ATH. Ný heimasíða. Sumir hlekkir gætu verið óvirkir á meðan að við fínpússum. Takk fyrir skilninginn
  • Virka daga 09:00 - 16:00
  • 513 1900
  • 513 1919
KEEP IN TOUCH
Enjoy 15% off your first order when you join our mailing list.

Hleðsluvaktin.is

1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru og/eða þjónustu á vefsvæðinu www.hledsluvaktin.is. Eigandi sölu- og þjónustuvefsins hledsluvaktin.is er Hleðsluvaktin ehf., kt. 691119–1650, Seljabót 7, 240 Grindavík. Hér eftir er talað um hleðsluvöktunarþjónustu Hleðsluvaktarinnar sem Hleðsluvaktin.is. Skilmálar þessir skilgreina réttindi og skyldur Hleðsluvaktin.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu Hleðsluvaktin.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.

„Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Hleðsluvaktin.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu eða með öðrum beinum hætti. Hleðsluvaktin.is býður kaupanda að fá vöruna senda heim til sín eða sækja í þjónustuver.

2. Verð og verðbreytingar
Verð á vefsvæði Hleðsluvaktin.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Hleðsluvaktin.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Hleðsluvaktin.is mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

3. Persónuupplýsingar
Á Hleðsluvaktin.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig Hleðsluvaktin.is umgengst þær persónuupplýsingar sem Hleðsluvaktin.is geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar. 

4. Aðgangur
Kaupandi hefur leyfi til að nota þá þjónustu sem Hleðsluvaktin.is býður upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Hleðsluvaktin.is setur. Bannað er að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á Hleðsluvaktin.is sem áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup hjá Hleðsluvaktin.is verður það tilkynnt til lögreglu. Hleðsluvaktin.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang kaupanda að Hleðsluvaktin.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

5. Innskráning og pöntun
Kaupandi getur skráð sig hjá Hleðsluvaktin.is til að sjá yfirlit yfir sínar pantanir og vörukaup. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista Hleðsluvaktin.is. Pöntun kaupanda á Hleðsluvaktin.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Hleðsluvaktin.is er þá skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein þessara skilmála) og sendir kaupanda staðfestingu með símaskilaboðum og/eða tölvupósti. Jafnframt sendir Hleðsluvaktin.is kaupanda afrit af reikningi ef og þá eftir að greiðsla berst frá kaupanda.

6. Afhending
Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Í kaupferlinu velur kaupandi sér sendingarleið og sendingartíma. Hleðsluvaktin.is leggur sig fram um að afhenda vöru á réttum tíma til kaupanda og upplýsir hann með símaskilaboðum, tölvupósti og/eða á vefsvæði Hleðsluvaktin.is hvenær vara er væntanleg til hans. Ef kaupandi hefur valið að fá sendingu með Póstinum þá ber Hleðsluvaktin.is ekki ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar. Pósturinn getur ekki sent stórar sendingar heim að dyrum alls staðar á landinu. Nánari upplýsingar um þjónustu póstsins má finna á heimasíðu Póstsins.

7. Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti á netfangið thjonusta@hledsluvaktin.is eða hafa samband við þjónustuver Hleðsluvaktin.is í síma 513 1919. Hleðsluvaktin.is áskilur sér rétt að sannreyna hvort um ósamræmi sé að ræða innan 7 daga frá mótttöku tilkynningar frá kaupanda.

8. Kaup á vöru og/eða þjónustu
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Hleðsluvaktin.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði Hleðsluvaktin.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum Hleðsluvaktin.is.

9. Greiðsla
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:

  • Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.
  • Reikningsviðskipti: Kaupandi getur sett vörukaup sín í viðskiptamannareikning kaupanda hjá Hleðsluvaktin.is. Kaupandi þarf að hafa samþykktan viðskiptamannareikning eða samhliða sótt um viðskiptamannareikning eftir að hafa valið að greiða fyrir vörukaupin í gegnum reikningsviðskipti. Hleðsluvaktin.is áskilur sér þann rétt að hafa samband við kaupanda til að sækja og meta viðeigandi upplýsingar um kaupanda áður en viðskiptamannareikningur er samþykktur.
  • Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra yfir á reikning Hleðsluvaktin.is og setja í tilvísun/stutt skýring númer á pöntun. Ef Hleðsluvaktin.is hefur ekki móttekið greiðslu innan tveggja daga falla kaupin sjálfkrafa niður.
  • Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.
  • Inneign: Ef kaupandi á inneign hjá Hleðsluvaktin.is getur hann greitt pöntun að hluta eða öllu leyti með inneign sinni.

10. Skilaréttur
Hleðsluvaktin.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til Hleðsluvaktin.is innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Hleðsluvaktin.is áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum og vera með öllu ónotuð. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Einnig þurfa allir aukahlutir að fylgja með vörunni.

    Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Hleðsluvaktin.is endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu - þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkorti, niðurfellingu á Netgíró kröfu, innlögn á bankareikning eða með inneign hjá Hleðsluvaktin.is sem kaupandi getur ráðstafað að vild í næstu kaupum hjá Hleðsluvaktin.is.

    11. Galli
    Ef vara er gölluð er Hleðsluvaktin.is skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Hleðsluvaktin.is mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst á netfangið thjonusta@hledsluvaktin.is eða hringi í þjónustuver Hleðsluvaktin.is í síma 513 1919 sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Hleðsluvaktin.is sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Hleðsluvaktin.is áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.

    12. Ábyrgð
    Ábyrgð Hleðsluvaktin.is hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.

    Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð, færð til, endurtengd eða átt við hana án samþykkis Hleðsluvaktin.is þrátt fyrir að þar hafi verið viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur líka úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði.

    Kaupandi getur keypt 2 (tveggja) ára viðbótarábyrgð sé hann einstaklingur og gildir sú viðbótarábyrgð samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 í 2 (tvö) ár eftir að fyrri ábyrgð rennur út.

    Hleðsluvaktin.is er ekki skuldbundin til að sjá um viðgerð á vöru, gefa afslætti eða skipta út vöru eftir að ábyrgðartíma lýkur.

    13. Eignarréttur
    Seldar vörur eru eign Hleðsluvaktin.is þar til kaupverð er greitt að fullu.

    14. Annað
    Hleðsluvaktin.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Hleðsluvaktin.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

    15. Ágreiningur
    Komi til vandamála varðandi viðskiptin sem ekki er unnt að leysa milli aðila má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd vöru og þjónustukaupa. Ef allt þrýtur má leita til dómstóla í íslenskri lögsögu og lögsagnarumdæmi Hleðsluvaktin.is.

    16. Gildistími
    Skilmálar þessir gilda frá 1. janúar 2021.

    Autel hleðslustöðvar

    Ef þitt húsfélag notar Autel hleðslukerfið þá getur þú valið um Autel hleðslustöðvar í þitt sérstæði til kaups eða leigu.
    Special Offer
    Save 50% Off
    Staða: Til á lager Margar á lager Uppselt Hægt er að kaupa þessa vöru en hún er ekki til á lager

    This is multi-purpose software that can be used for any type of the store.
    Liquid error (sections/index-section-single-product line 91): product form must be given a product
    Special Offer
    Save 50% Off
    Staða: Til á lager Margar á lager Uppselt Hægt er að kaupa þessa vöru en hún er ekki til á lager

    This is multi-purpose software that can be used for any type of the store.
    Liquid error (sections/index-section-single-product line 91): product form must be given a product

    VERTU ÁVALLT SÆLL

    ABOUT OUR STORE
    Special Offer
    Save 50% Off
    Staða: Til á lager Margar á lager Uppselt Hægt er að kaupa þessa vöru en hún er ekki til á lager

    This is multi-purpose software that can be used for any type of the store.
    Liquid error (sections/index-section-single-product line 91): product form must be given a product
    Special Offer
    Save 50% Off
    Staða: Til á lager Margar á lager Uppselt Hægt er að kaupa þessa vöru en hún er ekki til á lager

    This is multi-purpose software that can be used for any type of the store.
    Liquid error (sections/index-section-single-product line 91): product form must be given a product
    Fara efst