Engar vörur í körfunni
Þessi Smappee EV Business 22 kW hleðslustöð er fyrir þriggja fasa rafmagnstöflu og er með Type 2 tengli. Smappee EV Business 22 kW kemur með 3 ára ábyrgð.
Smappee leggur áherslu á að það sé öruggt að hlaða rafbílinn og að það sé alltaf hægt að skoða hleðsluna í fríu símaappi og netskjáborði í tölvunni.
Þú færð:
- Innbyggt lekaliðasjálfvar
- MID vottaðan rafmagnsmæli
- Frítt app og netskjáborð
- Viðhaldsfría hleðslustöð á planið þitt
Við aðstoðum þig við að fá endurgreiddan virðisaukaskatt (VSK) af bæði hleðslustöðinni og uppsetningunni.
Þú færð því endurgreiðslu uppá 24% af bæði hleðslustöðinni og uppsetningunni með sölukvittun frá okkur.
Þú getur valið um að sjá um uppsetninguna eða látið okkur um verkefnið.
Veldu um
- Án uppsetningar
- Með uppsetningu
- Með raflögn og uppsetningu
Smappee EV Wall Business er með innbyggða skýjalausn og því er einfalt að bæta álagsdreifingu við stöðina. Álagsdreifingin er keypt sérstaklega og tengd í viðkomandi rafmagnstöflu. Álagsdreifingin talar við stöðina í gegnum nettengingu og því þarf ekki að tengja samskiptasnúru á milli stöðva þegar fleiri en ein stöð er uppsett.
Álagsdreifing er sett upp í viðkomandi rafmagnstöflu og hægt að tengja ótakmarkaðar stöðvar við hana. Því þarf eina álagsdreifingu fyrir eina jafnt sem fleiri stöðvar.
Með álagsdreifingu lengist ábyrgðin á hverri tengdri hleðslustöð til 5 ára.
Helstu eiginleikar:
Tæknilegar upplýsingar:
Skráðu þig inn til að bæta vöru í óskalistann þinn